Skemmtilegt sparnaðarnámskeið fyrir alla

Skemmtilegt sparnaðarnámskeið fyrir alla

Átt þú sparnað?

Átt þú sparnað fyrir næsta sumarfríi?

Átt þú sparnað fyrir jólunum?

Átt þú sparnað fyrir óvæntum útgjöldum?

Átt þú nægan sparnað þegar ljúfa lífið hefst?

Lærðu hvernig þú gerir sparnað sjálfsagðan hluta af lífinu og jafn auðveldan og að fara á fætur.

 

 

  • Að loknu námskeiðinu verður þú búin/n að setja upp sparnað til að ná þínum
    markmiðum og láta drauma þína rætast. 

    Þú verður komin/n með skýra mynd af því hvaða sparnaðarreikninga þú vilt setja upp og hvenær. Það sem meira er, þú verður komin/n með nýtt viðhorf gagnvart sparnaði og nýjan skilning á aðferðum til að ná honum.

    Margir kannast við að hafa oft ætlað sér að spara en það hefur ekki komist í verk eða ekki náðst að halda það út nema í stuttan tíma. 

    Hér erum við því bæði að skoða sparnaðarmál og einnig hvernig við setjum okkur upp venjur og viðhöldum þeim.

  • Á námskeiðinu verður farið yfir:
     Sparnaðarskipulag
     Stýringu sparnaðar
     Spara inn á lán
     Sparnaðarreikning
     Lífeyrissparnað
     Viðbótarlífeyrissparnað
     Verðbréfasparnað
     Sparnaðarvenjur

    • Sparnaðaráætlun. Skjal til að gera þína eigin sparnaðaráætlun. Þar getur þú raðað upp þínum sparnaði og forgangsraðað eftir þínum markmiðum. Við förum yfir hvernig hún er unnin á námskeiðinu. 
    • Samantektarbækling með öllu því sem farið er yfir á námskeiðinu. Þannig getur þú rifjað upp það sem farið er yfir, þarft ekki að glósa meðan á námskeiðinu stendur og getur einbeitt þér að því að hlusta og njóta.
  • Námskeiðið hentar öllum einstaklingum sem vilja taka stöðuna á sparnaði sínum eða byrja að spara. 

    Námskeiðið hentar jafn vel þeim sem áður hafa sparað og vilja efla sinn
    sparnað og þeim sem eru að byrja að spara.

    Námskeiðið hentar öllum óháð því í hvaða tekjustigi þeir eru og áhersla er á að fara yfir málin á mannamáli á léttan og
    skemmtilegan hátt.

  • Hægt er að fá sparnaðinn sem námskeið eða sem fyrirlestur fyrir hópinn þinn, allt eftir
    því hvað hentar best fyrir þitt starfsfólk. Hafðu samband og við finnum bestu lausnina
    fyrir ykkur.

Sendu fyrirspurn

Hvernig getum við aðstoðað?


  • Þóra Valný Yngvadóttir hefur yfir 25 ára reynslu á fjármálamarkaði þar sem hún starfaði
    sem fjármálaráðgjafi í Prudential, Englandi og stjórnandi ráðgjafar í Kaupþingi og
    Landsbankanum. Námskeið hennar hafa notið mikilla vinsælda og er þar sérstaklega
    vísað til einstakra hæfileika hennar til að fjalla um fjármál á mannamáli, tengja við
    daglegt líf og gera skemmtilegt.
    Þóra Valný er BA (hons) viðskiptafræðingur með löggildingarpróf í fjármálaráðgjöf FPC
    frá viðskiptaráðuneyti Bretlands. Hún er einnig með löggildingu í verðbréfaviðskiptum frá
    Háskóla Íslands og ACC vottaður markþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík. Núna rekur
    Þóra Valný fyrirtækið Val og virði þar sem hún veitir einstaklingum fjármálaráðgjöf og
    heldur námskeið um flestallt sem tengist fjármálum.

Kynntu þér fleiri námskeið