Ljúfa lífið hefst – lífeyrisnámskeið fyrir 50 ára og eldri
Hvað gerist þegar þú hættir að vinna? Hvað gerist þegar þú verður 60 ára?
Hvaðan koma peningarnir?
Lærðu hvað þú getur gert til að fá sem mest út úr þínum lífeyri.
-
Markmiðið er að undirbúa þig fyrir starfslok og lífeyristöku til að gera þér kleift að ná þínum markmiðum og láta drauma þína rætast.
Að loknu námskeiði þá getur þú greint á milli mismunandi tegunda lífeyrisgreiðslna og skipulagt þær, þannig að þær nýtist þér og þínum sem allra best.
Þú munt hafa næga þekkingu til að taka upplýstar ákvarðanir um næstu skref og
hvernig þú vilt haga málum þar til þú hættir að vinna til að undirbúa þau tímamót þannig
að þau verði eins og þú óskar þér.Eftir námskeiðið getur þú stillt upp tekjustraumum þínum til að vera tilbúnir þegar kemur að því að þú hættir að vinna og ljúfa lífið hefst.
-
Hvenær er best að byrja að taka út lífeyrisgreiðslur mínar?
Hvenær er best að taka út viðbótarlífeyrissparnað?
Ég er með tilgreinda séreign, hvenær á að taka hana út?
Hvaða skatta þarf ég að greiða?
Í hvaða tilfellum þarf ég að borga fjármagnstekjuskatt?
Geta allir fengið lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins?
Hvað eru skerðingar lífeyris?
Hvernig skiptast lífeyrisréttindi á milli hjóna?
Hverjir þurfa að gera erfðaskrá?
Hvernig get ég nýtt eignir mínar til lífeyris?
Og margt fleira sem tengist ljúfa lífinu og lífeyrismálum. -
Lífeyrisáætlun. Skjal til að gera þína eigin lífeyrisáætlun. Þar getur þú raðað upp
þinni innkomu og gert mismunandi sviðsmyndir. Við förum yfir hvernig hún er
unnin á námskeiðinu.
Samantektarbækling með öllu því sem farið er yfir á námskeiðinu. Þannig getur
þú rifjað upp það sem farið er yfir, þarft ekki að glósa meðan á námskeiðinu
stendur og getur einbeitt þér að því að hlusta. -
Námskeiðið hentar vel fyrir 50 ára og eldri sem vilja undirbúa vel sín starfslok og lífeyristöku. Mikilvægt er fyrir alla að skipuleggja vel þennan kafla í lífinu, til að hann verði auðveldur og ánægjulegur. Námskeiðið hentar öllum óháð því í hvaða tekjustigi þeir eru og áhersla er á að fara yfir málin á mannamáli á léttan og skemmtilegan hátt.
-
Hægt er að fá fræðsluna sem námskeið eða fyrirlestur fyrir hópinn þinn, allt eftir
því hvað hentar best fyrir þitt starfsfólk. Hafðu samband og við finnum bestu lausnina fyrir ykkur. -
Þóra Valný Yngvadóttir hefur yfir 25 ára reynslu á fjármálamarkaði þar sem hún starfaði
sem fjármálaráðgjafi í Prudential, Englandi og stjórnandi ráðgjafar í Kaupþingi og
Landsbankanum. Námskeið hennar hafa notið mikilla vinsælda og er þar sérstaklega
vísað til einstakra hæfileika hennar til að fjalla um fjármál á mannamáli, tengja við
daglegt líf og gera skemmtilegt.
Þóra Valný er BA (hons) viðskiptafræðingur með löggildingarpróf í fjármálaráðgjöf FPC
frá viðskiptaráðuneyti Bretlands. Hún er einnig með löggildingu í verðbréfaviðskiptum frá
Háskóla Íslands og ACC vottaður markþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík. Núna rekur
Þóra Valný fyrirtækið Val og virði þar sem hún veitir einstaklingum fjármálaráðgjöf og
heldur námskeið um flestallt sem tengist fjármálum.
Námskeið
Hentar þessi dagsetning ekki?
Skráðu þig á biðlista og veldu námskeið og fyrirkomulagið sem hentar þér.
Kynntu þér fleiri námskeið