Rómantískt Reikningakvöld
Eruð þið sem par að leita leiða til að gera fjármálin léttara verkefni?
Eruð þið ekki viss um hvernig sé rétt að gera þetta?
Peningaáhyggjur eru ein algengasta orsök ágreinings í parasamböndum. Fjárhagslegur
óviðráðanleiki og ólík viðhorf til eyðslu getur svo sannarlega grafið undan samstöðu og
trausti í annars ágætu sambandi. Til að hlúa að rómantíkinni má ekki gleyma að hlúa að
fjármálunum.
-
Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig hægt er að setja upp mánaðarlegt stefnumót yfir
reikningnum á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt. Hvernig lítur mánuðurinn út, hvað
gekk vel og hverju má breyta og hvað má bæta? Hvað er framundan? Eru markmiðin
enn þau sömu og einu sinni var lagt upp með? Þetta snýst um að efla heiðarleika og
samstöðu um fjármálin.
Markmiðið er að pör geti snúið bökum saman þegar kemur að peningum og fundið leiðir
til að ná framúrskarandi árangri. Við leggjum áherslu á einfaldleika og léttara hugarfar
þannig að fjármálin verði skemmtilegt samvinnuverkefni í stað þess að vera kvöð. -
Að loknu námskeiðinu verðið þið búin að stilla saman fjárhagsleg markmið ykkar í nútíð
og framtíð og skipuleggja fjármálin til að ná þeim. Þið verðið komin með verkfæri til að
gera ykkur þetta auðvelt og komin með fjárhagslega meðvitund sem þýðir að þið vitið
nákvæmlega stöðuna á fjármálunum, í hvað peningarnir fara og í hvað þið viljið stýra
þeim í framtíðinni. -
Fjóra meginstoðir fjármála:
Sparnaður
Yfirsýn
Tryggingar
Lán
Tekin er staðan á hverjum lið fyrir sig og greint með parinu hvað er óskastaðan og hver
eru framtíðarmarkmiðin eða draumarnir. Síðan er farið í að stilla upp óskastöðunni og
gera verkefnisáætlun yfir þær breytingar sem þarf að gera.
Á námskeiðinu fær parið verkfæri til að viðhalda því skipulagi sem komið er upp.
Námskeiðið nær yfir a.m.k. 2 mánuði til að gera nauðsynlegar breytingar á venjum og
hafa nægan tíma til að festa þær í sessi.
Meðal þeirra spurninga sem er svarað er:
Hvernig gerum við peningaáætlun?
Er erfitt að halda peningabókhald?
Hvernig veljum við í hvað peningarnir fara?
Hvaða greiðsluleiðir eru bestar fyrir okkur?
Hvernig gerum við sparnaðarskipulag?
Hvaða valmöguleikar eru í boði þegar verið er að stofna heimili?
Hvað skiptir mestu máli þegar íbúðalán er valið?
Hvernig höldum við yfirsýn yfir fjármálin?
Hvaða tryggingar þurfum við að vera með?
Í hvaða viðbótarlífeyrissparnað er best að spara?
Hvað er svona rómantískt við reikningakvöld?
Og margt fleira tengt fjármálum heimilisins. -
2ja mánaðar aðgang að sérfræðingi
Skjöl og verkfæri til að viðhalda góðum fjármálavenjum
Samantektar bæklinga um fjórar stoðir fjármála -
Námskeiðið hentar öllum pörum sem vilja taka fjármálin í gegn og stilla sig saman,
þannig að draumar þeirra og framtíðarmarkmið rætist. Námskeiðið er gagnlegt öllum
pörum, sama í hvaða tekjustiga þau eru.
Námskeiðið hentar einnig öllum einstaklingum sem vilja taka stöðuna á fjármálunum
sínum og vilja stöðugt vinna að því að efla sína fjárhagslegur heilsu til að njóta sinna
fjármuna sem best.
-
Hægt er að fá námskeiðið fyrir hópinn þinn, allt eftir því hvað hentar best fyrir þitt starfsfólk. Hafðu samband og við finnum bestu lausnina fyrir ykkur.
-
Þóra Valný Yngvadóttir hefur yfir 25 ára reynslu á fjármálamarkaði þar sem hún starfaði
sem fjármálaráðgjafi í Prudential, Englandi og stjórnandi ráðgjafar í Kaupþingi og
Landsbankanum. Námskeið hennar hafa notið mikilla vinsælda og er þar sérstaklega
vísað til einstakra hæfileika hennar til að fjalla um fjármál á mannamáli, tengja við
daglegt líf og gera skemmtilegt.
Þóra Valný er BA (hons) viðskiptafræðingur með löggildingarpróf í fjármálaráðgjöf FPC
frá viðskiptaráðuneyti Bretlands. Hún er einnig með löggildingu í verðbréfaviðskiptum frá
Háskóla Íslands og ACC vottaður markþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík. Núna rekur
Þóra Valný fyrirtækið Val og virði þar sem hún veitir einstaklingum fjármálaráðgjöf og
heldur námskeið um flestallt sem tengist fjármálum.
Hentar þessi dagsetning ekki?
Skráðu þig á biðlista og veldu námskeið og fyrirkomulagið sem hentar þér.
Komandi námskeið sem breyta leiknum