Fjárhagsleg heilsa

Fjárhagsleg heilsa

Af hverju fjárhagsleg heilsa?

Við viljum öll vera hamingjusöm, en vissir þú að fjárhagsleg heilsa er stór hluti af þeirri jöfnu?

Nýjar rannsóknir sýna að fjármálin tengjast andlegri líðan okkar sterkari böndum en áður var talið.

Þegar fjárhagslega heilsan bregst getur það haft keðjuverkandi áhrif á lífið allt og vegið alvarlega að sjálfsmyndinni.

 

  • Hér er á ferðinni bráðsniðugur stuttur fyrirlestur um hugtakið “Fjárhagsleg heilsa”. Að loknum fyrirlestrinum ættir þú að hafa góða hugmynd um hvað fjárhagsleg heilsa er og hafa næga þekkingu til að geta gert úttekt á þinni eigin fjárhagslegri heilsu og hæfni til að taka ákvarðanir um hverju þú vilt breyta. 

  • Á fyrirlestrinum er farið yfir hugarfarið tengt fjármálum, hvernig viðhorf okkar getur annaðhvort eflt fjármál okkar eða hindrað. Farið er yfir meginstoðir fjármála og hvaða atriði þarf að hafa í huga varðandi hvern lið fjármála. 

  • Samantektarskjal yfir þá þætti sem hafa mest áhrif á fjárhagslega heilsu og þátttakendur gætu mögulega viljað skoða nánar.

  • Fyrirlesturinn er hugsaður fyrir starfsfólk fyrirtækja, hópa stéttarfélaga eða samtaka sem vilja fræðast nánar um fjárhagslega heilsu. 

  • Um er að ræða u.þ.b. 60 mínútna fyrirlestur sem hægt er að panta til ykkar eða fá on-line.. Hafðu samband og við finnum réttu lausnina fyrir ykkur. 

Sendu fyrirspurn

Hvernig getum við aðstoðað?

Fleiri námskeið